Sigrún Gyða Matthíasdóttir, leikskólastjóri hefur yfirumsjón með málaflokki barnaverndarmála á Akri.
Erla Ragnarsdóttir, þroskaþjálfi og tengiliður farsældar hefur umsjón með barnaverndarmálum á Akri og er tengiliður skólans við Barnavernd Reykjanesbæjar.
Markmið barnaverndar er að tryggja börnum viðunandi uppeldisskilyrði með því að styrkja fjölskyldur og beita úrræðum til verndar einstaka börnum þegar það á við. Með börnum er átt við einstakling undir 18 ára aldri. Barnavernd tekur ávallt mið af stefnu Reykjanesbæjar, barnaverndarlögum nr. 80/2002, og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
(16. gr. barnaverndarlaga)
a. búi við óviðunandi uppeldisaðstæður,
b. verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða
c. stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.
Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.