Á Akri eru 6 kjarnar; kjarni er okkar orð yfir deild og hefur sömu merkingu þó með öðrum áherslum. Kjarnar eru sjálfstæðar einingar þar sem börn og kennarar vinna í sameiningu að markmiðum sínum. Börnunum er svo skipt niður í sjálfstæða hópa, hver með sinn kennara. Kjörnunum er skipt í Stúlknaeiningu og Drengjaeiningu. Þeir eru sitt hvorum megin í húsinu en samkvæmt kynjanámsskrá Hjallastefnunnar er sérstökum vinahópum ætlað að hittast á hverjum degi og iðka það sem við köllum kynjablöndun en þau hittast kynin og gera verkefni á jafnréttisgrundvelli.
Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.