Leikskólinn Akur · Tjarnabraut 1 · Reykjanesbær · Sími 421-8310 · akur@hjalli.is Innri vefur skólans · Hjallastefnan ↗

Saga skólans

Akur er Hjallastefnuleikskóli sem er starfræktur í Reykjanesbæ. Leikskólinn er opinn frá 7:45-16:15

Leikskólinn Akur
Leikskólinn Akur tók til starfa haustið 2007 og hefur Hjallastefnan rekið skólann frá upphafi. Skólinn er 1110 m2 að stærð með 6 kjörnum. Akur er staðsettur í Innri-Njarðvík en mikil fólksfjölgun hefur verið þar á undanförnum árum. Leikskólinn er vel staðsettur hvað náttúru varðar. Börnin hafa mólendi og fjöru í göngufæri sem að sjálfsögðu er nýtt til fullnustu. Fjaran við Narfakotsseylu er útikennslusvæði barna og íbúa í Reykjanesbæ. Svæðið hefur verið þróunarverkefni þeirra þriggja leik- og grunnskóla sem eru í Innri-Njarðvík. Á fræðsluvef Hjallastefnunnar er að finna nánari upplýsingar, m.a. um meginreglur og kynjanámskrá Hjallastefnunnar.

AKUR-leikskoli-samningur.jpg 16.75 KB

Við hlökkum til að heyra frá þér

Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.

📍 Tjarnabraut 1, Reykjanesbær
📞 421-8310