Alla Maksymchenko er íþróttakennari sem hefur starfað á Akri undanfarin misseri. Alla er íþróttakennari og heldur utan um sérstakar hreyfistundir á Akri. Undir hennar handleiðslu gefst hópunum okkar tækifæri til að þjálfa andlega og líkamlega eiginleika.
Hreyfistundirnar leggja áherslu á :
1. Styrk/kraft
2. Úthald
3. Snerpu
4. Liðleika
5. Samhæfingu huga og viðbragða.
Kynning frá Öllu um hreyfistundir og núvitundaræfingar á Akri
Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.