Samkvæmt 16. gr. laga um tengsl leikskóla og grunnskóla eiga persónuupplýsingar, sem liggja fyrir um hvert barn og teljast nauðsynlegar fyrir farsæla aðlögun og velferð þess í grunnskóla, að fylgja barninu við skólaskipti. Við meðferð og miðlun þessara upplýsinga gildir full þagnarskylda og skal farið að ákvæðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Foreldrar eru upplýstir um þá upplýsingamiðlun sem fram fer og hvernig hún styður við farsæla yfirfærslu barnsins milli skólastiga.
Þegar barn flyst á milli leikskóla eða hefur nám í grunnskóla, veitir leikskólinnupplýsingar um börn með eyðublaðinu Skil milli skólastiga, upplýsingar milli leik- og grunnskóla. Mikilvægt er að þar komi einungis fram þær upplýsingar sem taldar eru nauðsynlegar fyrir skólastarfið á næsta skólastigi. Í umsögninni eru styrkleikar barnsins tilgreindir og hvernig best hefur verið komið til móts við þarfir þess.
Umsögnin inniheldur m.a. upplýsingar um:
Fyrir börn sem hafa notið viðbótarstuðnings fylgja einnig upplýsingar um:
Vegna barna sem hafa fengið samþykkta umsókn í sérhæft námsúrræði er einnig skilað tilfærsluáætlun.
Eyðublöðin eru varðveitt í persónumöppu barnsins ásamt öðrum gögnum sem tilgreind eru á eyðublaðinu. Foreldrar hafa þar jafnframt tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum ef þeir óska þess.
Niðurstöður úr Hljóm-2, EFI-2 og helstu niðurstöður TRAS og MIO skimana fylgja barninu, ásamt öðrum gögnum sem talin eru geta stutt við skólagöngu þess á næsta skólastigi með vitund foreldra. Hafi verið unnin einstaklingsnámskrá fyrir barnið fylgir nýjasta útgáfa hennar með í persónumöppu barnsins.
Hafi foreldrar óskað eftir samþættingu samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (2021/86) fylgja þau gögn einnig.
Við skil á gögnum milli skólastiga er haldinn fundur þar sem starfsfólk leikskóla skilar ofantöldum gögnum til grunnskóla barnsins.
Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.