Í skólanum er ráðgjafarteymi sem bregst við ef áhyggjur vakna hjá starsfólki varðandi þroskaeinkenni, hegðunareinkenni / -vanda eða annað sem getur haft áhrif á skólagöngu barns. Mikilvægt er að bregðast hratt við ef áhyggjur eru til staðar og er mál metið fyrst innanhúss áður en unnið er í málum með stuðningi utanaðkomandi aðila en slíkt er alltaf gert í samráði við og með samþykki foreldra.
Spurningar hópsstjóra um atriði sem tengjast atferli, einkennum og líðan barna er beint í farveg innan skólans sem leiðir af sér snemmtækt mat eða skimun að höfðu samráði við foreldra. Í framhaldi af samtölum og mati með þátttöku sérkennsluaðila er máli vísað til ráðgjafarteymis sé mál þess eðlis.
Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.