Þau sem hafa hug á að bætast við okkar frábæra teymi hér á Akri eru beðin um að fylla út eyðublað, við munum svara umsóknum eins fljótt og hægt er þar sem aðilar eru annað hvort boðaðir í atvinnusamtal eða tjáð að ekki sé unnt að taka á móti nýliðum að svo stöddu.
Mikilvægar upplýsingar:
Til þess að geta starfað á Akri er æskilegast að vera með kennsluréttindi eða menntun í uppeldisfræðum.
Góð Íslenskukunnátta er skilyrði.
Gleði er starfslýsing ásamt getu til að mæta einstaklingum með kærleika og virðingu í öllum aðstæðum.
Opnunartími skólans er frá 7:45-16:15 og þarf starfsfólk að geta mætt á þeim tímum.
Við erum tóbakslaus skóli.
Skila þarf inn eftirfarandi skjölum áður en viðkomandi getur hafið störf að loknu atvinnusamtali :
Sakavottorði
Námsferilsvottorð/prófskírteini/námsferill
Starfsvottorði
Skattkortsupplýsingar (nýjar)
Reikningsnúmer
Orlofsreikningur
Upplýsingum til laungreiðanda.
Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.